
Ég fæddist á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri föstudaginn 30. juní 2006. Mamma var sett 4 júlí, en hún var sett afstað þann 30. og var ég nú bara mjög sátt við það. Ég var nú samt frekar lítil þegar ég kom í heiminn eða 2840gr og 49cm. En ég var dugleg að drekka og þyngdist því vel. Ljósmóðirin sem tók á móti mér heitir Halla Harðardóttir og henni til aðstoðar var Stefanía Hauksdóttir.
Mamma og Pabbi ákváðu að læsa síðunni en ekki vera feimin við að biðja um lykilorðið. Vinsamlegast ekki gefa öðrum lykilorðið, bendið fólki bara á að hafa samband við okkur.
Mamma mín heitir Harpa Kristín og við búum á Akureyri með Sidda og Sigþóri litla bróðir mínum. Pabbi minn heitir Sævar Már og hann býr með kærustunni sinni, Maríu á Sauðárkróki. Ég er fyrsta barn mömmu en pabbi á tvo stráka. Binna ´00 og Hilmar Örn ´03. Ég er á leikskólanum Lundarsel og deildin mín heitir Bangsadeild.
Mamma mömmu heitir Sigga og býr með Svenna í Kópavogi, pabbi mömmu heitir Doddi og býr í Reykjavík. Mamma og pabbi pabba heita Ásgerður og Þorbergur og búa í Mývatnssveit. Ég á svo eina langömmu sem býr á Flateyri.

